Hjónaband samkynhneigðra
Hjónaband samkynhneigðra (e. same-sex marriage) er hjónaband tveggja einstaklinga af sama kyni.
Í gegnum tíðina hefur staða samkynhneigðra í samfélaginu verið mjög misjöfn. Í sumum samfélögum til forna var mjög algengt að eldri menn væru í kynferðislegum samböndum með yngri drengjum og þótti það ekkert annað en eðlilegt. Eftir kristnitöku hefur verið mjög áberandi viðhorfsbreyting í garð samkynhneigðra og versnaði staða þeirra í samfélaginu nánast allstaðar í heiminum. Það þekkist í sumum samfélögum að það megi drepa þann sem er samkynhneigður, á öðrum stöðum þurfa samkynhneigðir að sæta fangelsisvist og á enn öðrum stöðum eru samkynhneigðir útskúfaðir úr samfélaginu. Allt er þetta vegna þess að samkynhneigð er talin ónáttúruleg á mörgum stöðum í heiminum. Adam og Eva voru fyrstu manneskjurnar og því þykir mörgum eðlilegt að kona og maður séu saman en ekki kona og kona eða karl og karl. Þar að auki geta samkynhneigðir ekki getið börn á náttúrulegan hátt sem hefur sitt að segja þegar það kemur að fordómum í garð þeirra.
Nú nýlega hefur ástandið farið batnandi á mörgum stöðum þó svo að samkynhneigðir njóti ekki neinstaðar allra sömu réttinda og gagnkynhneigðir. Sem dæmi um þetta má nefna að hér á Íslandi mega samkynhneigðir ekki gefa blóð.
Danmörk var fyrsta landið til þess að samþykja sambúð samkynhneigðra árið 1989 og tóku Íslendingar upp sömu lög í júní árið 2006. Fyrsta landið til að lögleiða hjónaband samkynhneigðra var Holland og var það lögleitt árið 2001. Níu árum seinna var hjónaband samkynhneigðra lögleitt á Íslandi.
„Eitt stærsta skrefið í réttindabaráttu samkynhneigðra var tekið árið 2010 þegar Alþingi samþykkti að ein hjúskaparlög skyldu gilda um alla. Með þessum breytingum féllu lög um staðfesta samvist úr gildi og í hjúskaparlögum nr. 31/1993 segir nú að lögin gildi um hjúskap ,,tveggja einstaklinga" en ekki ,,karls og konu" eins og áður. Lögin gilda því um hjúskap allra, burtséð frá kyni eða kynhneigð.“ (humanrights.is)
Í dag er hjónaband samkynhneigðra löglegt í Hollandi, Belgíu, Kanada, Suður-Afríku, Svíþjóð, Portúgal, Noregi, Mexíkó, Argentínu, Danmörku, Nýja-Sjálandi, Bretlandi og á Spáni og Íslandi.

http://www.humanrights.is/mannrettindi-og-island/hopar/samkynhneigdir/ (sótt 20. apríl)
http://en.wikipedia.org/wiki/Same-sex_marriage#Legal_recognition/ (sótt 20. apríl)