Fjölvkvæni
Fjölkvæni (e.polygyny) er það hjúskaparform þegar einn maður á tvær eða fleiri eiginkonur. Fjölkvæni er algengasta tegund fjölvensl en það tíðkast aðallega í Afríku og hlutum Asíu. Fjölkvæni er oft talið merki um vald, þ.e. þeir menn sem eiga fleiri en eina konu eru voldugri og ríkari en meðalmaðurinn. Það er rökrétt að því leyti að maðurinn þarf að sjá fyrir fleiri konum og þarf því að vera vel settur fjárhagslega.
Fjölkvæni er sjaldgæft í Evrópu en finnst þó meðal minnihlutahópa í Bosníu og Hersegóveníu og Rússlandi. Í Bandaríkjunum er fjölkvæni ólöglegt og aðeins örsmár hluti stundar það, þá helst í suður-ríkjunum.
Þegar maður á fleiri en eina konu þarf hann ekki að giftast öllum konunum sínum í einu. Það er oftast tilvikið að maður og kona stundi einvensl og svo bætist við önnur kona og svoleiðis gengur það koll af kolli. Fyrsta konan í sambandinu er þá talin sem nokkursskonar yfirkona og í sumum samfélögum þá ræður hún yfir hinum, nýrri konunum á meðan eiginmaðurinn er í burtu.
Fjölkvæni er algengast meðal múslima þó svo að margir múslimar telji það rangt. Kristni bannar fjölkvæni algerlega en það finnast þó kristnihópar, sérstaklega í Utah í Bandaríkjunum, sem stunda fjölkvæni. Margir sem stunda fjölvensl réttlæta það með því að vitna í hebresku biblíuna þar sem margar höfuðpersónur áttu fleiri en eina konu, sem dæmi má nefna Abraham og Salomon kóngur.
ATH þó að íslenskur maður gerist múslimi eða annarrar trúar þá getur hann ekki tekið upp fjölkvæni. Lögmæti fer ekki eftir trúarhópum heldur samfélögum. Þannig gæti maður frá Indlandi ekki flutt til Íslands og verið löglega giftur fleiri en einni konu.

http://www.visindavefur.is/svar.php?id=1153 (sótt 20. apríl)
http://en.wikipedia.org/wiki/Polygyny (sótt 20. apríl)
http://www.apologeticsindex.org/116-which-groups-practice-polygamy (sótt 20. apríl)
Mannfræði fyrir byrjendur