Gervihjúskapur
Gervihjúskapur (e. fictive marriage) er hjónaband þar sem annar aðilinn er ekki til staðar. Slík hjónabönd eru oft gerð í þeim tilgangi að þjóna hagsmunum aðilans sem er til staðar. Algengast er að maki falli frá og gifting er þá framkvæmd eftir andlátið í lagalegum tilgangi. Með þessu móti erfast þá eigur þess látna til makans.
Önnur dæmi eru um að gifting hafi verið ákveðin en svo fellur annar aðili sambandsins frá en hinn aðilinn vil ennþá giftast þeim látna. Þetta er mjög óalgengt en það má nefna dæmi um þetta í Frakklandi árið 2009, þá þurfti að Nicolas Sarkozy forseti Frakklands að gefa sérstakt leyfi fyrir brúðkaupinu en brúðguminn í tilvikinu hafði látist í bílslysi skömmu fyrir áætlaða giftingu parsins.
Tegund gervihjúskapar sem er töluvert óalgengari og að flestum álitin óeðlileg er hjúskapur manneskju og hlutar. Þá ber manneskjan yfirleitt sterkar tilfinningar til ákveðins hlutar og langar til þess að giftast honum. Lögleg gifting fer ekki fram heldur ákveður manneskjan það hreinlega að hún sé gift hlutnum og breytir jafnvel eftirnafni sínu í samræmi við hlutinn. Þekktasta dæmið um þetta er Erika La Tour Eiffel sem eins og nafnið gefur til að kynna, er gift Eiffel turninum. Fyrsta manneskjan til að giftast hlut er Eija-Riitta Berleiner-Mauer sem hefur nú verið gift Berlínarmúrnum í 29 ár.

http://www.telegraph.co.uk/news/newstopics/howaboutthat/2074301/Woman-with-objects-fetish-marries-Eiffel-Tower.html (sótt 22. apríl)
Mannfræði fyrir byrjendur
Mannfræði fyrir byrjendur